Nokia E7 00 - Vista staðsetningargögn í myndum og myndskeiðum

background image

Vista staðsetningargögn í myndum og myndskeiðum
Ef þú átt stundum erfitt með að muna hvar einhver mynd eða eitthvert myndskeið

voru tekin geturðu stillt símann þannig að staðsetningin skráist sjálfvirkt.

Haltu myndavélartakkanum inni.

Hægt er að hengja staðsetningarupplýsingar við mynd eða myndskeið ef hægt er að

ákvarða staðsetninguna með símkerfinu eða GPS. Ef þú deilir mynd eða myndskeiði

sem inniheldur staðsetningarupplýsingar geta þeir sem skoða myndina eða

myndskeiðið hugsanlega séð upplýsingarnar Hægt er að gera landmerki óvirk í

stillingum myndavélarinnar.

Virkja skráningu staðsetningar
Veldu táknin

> >

Vista staðsetningu

>

.

Það getur tekið nokkrar mínútur að fá staðsetningarhnitin.

Framboð og gæði GPS-merkja kann að verða fyrir áhrifum af staðsetningu þinni,

staðsetningu gervihnatta, byggingum, náttúrulegum hindrunum, veðurskilyrðum og

breytingum á GPS-gervihnöttum sem gerðar eru af Bandaríkjastjórn. Ekki er víst að

GPS-merki náist inni í byggingum eða neðanjarðar.

Ekki skal nota GPS við nákvæmar staðsetningarmælingar og aldrei ætti að treysta

eingöngu á staðsetningargögn frá GPS og farsímakerfum.

Vísar staðsetningargagna:

— Staðsetningargögn eru ekki í boði. Staðsetningargögn eru ef til vill ekki vistuð

á myndir eða myndskeið.

— Staðsetningargögn eru tiltæk. Staðsetningargögn eru vistuð í myndum eða

myndskeiðum.