
Síminn stilltur á sjálfvirka læsingu
Viltu verja símann gegn óleyfilegri notkun? Veldu öryggisnúmer og stilltu símann
þannig að hann læsist sjálfkrafa þegar hann er ekki í notkun.
1 Veldu >
Stillingar
>
Sími
>
Símastjórnun
og
Öryggisstillingar
>
Sími og SIM-
kort
.
2 Veldu
Öryggisnúmer
og sláðu inn öryggisnúmer. Slá verður inn minnst 4 stafi og
hægt er að nota tölur, tákn eða há- og lágstafi.
Haltu öryggisnúmerinu leyndu og á öruggum stað fjarri símanum. Ef þú gleymir
öryggisnúmerinu og síminn er læstur þarftu að leita til þjónustuaðila. Þú gætir
þurft að greiða viðbótargjald og persónulegum upplýsingum í símanum kann að
verða eytt. Nánari upplýsingar fást hjá Nokia Care þjónustuveri eða seljanda
símans.
3 Veldu
Sjálfvirkur læsingartími síma
og tilgreindu tímann sem á að líða þar til
síminn læsist sjálfkrafa.
Símanum læst handvirkt
Ýttu á rofann á heimaskjánum, veldu
Læsa síma
og sláðu inn öryggiskóða.
Síminn tekinn úr lás
Renndu takkalásnum til, sláðu inn öryggiskóðann og veldu
Í lagi
.
118 Símastjórnun

Ef takkalásinn er ekki innan seilingar skaltu ýta á valmyndartakkann og velja
Úr lás
.