Forrit fjarlægt úr símanum
Þú getur fjarlægt uppsett forrit sem þú þarft ekki lengur að nota, til að auka minni.
Veldu >
Stillingar
og
Uppsetningar
.
1 Veldu
Þegar uppsett
.
2 Veldu forritið og haltu því til að fjarlægja, og veldu
Fjarlægja
í sprettivalmyndinni.
Ef forrit er fjarlægt er aðeins hægt að setja það upp aftur ef upphaflegi
hugbúnaðarpakkinn eða fullkomið afrit af forritinu sem var fjarlægt er til staðar. Ekki
er víst að þú getir opnað skrár sem búnar voru til með forriti sem var fjarlægt.
Ef uppsett forrit styðst við forrit sem er fjarlægt kann uppsetta forritið að hætta að
virka. Nánari upplýsingar er að finna í notendaleiðbeiningum uppsetta forritsins.
Uppsetningarskrárnar geta tekið mikið minni og valdið því að ekki sé hægt að vista
aðrar skrár. Notaðu Nokia Ovi Suite til að taka öryggisafrit af uppsetningarskrám og
setja afritið á samhæfa tölvu. Að því loknu skaltu nota Skráarstjórann til að eyða
skránum úr minni símans.