
Breyta USB-stillingu
Til að fá sem bestar niðurstöður þegar efni er flutt eða síminn er samstilltur við
tölvuna skaltu virkja viðeigandi USB-stillingu þegar þú notar USB-gagnasnúru.
1 Tengdu símann við tölvuna með samhæfri USB-snúru.
2 Strjúktu niður frá tilkynningasvæðinu í símanum.
3 Veldu
USB-snúra
og úr eftirfarandi.
Tengingar 109

Nokia Ovi Suite — Tengdu símann þinn við samhæfa tölvu sem hefur Nokia Ovi
Suite uppsett. Í þessari stillingu geturðu samstillt símann þinn við Nokia Ovi Suite og
notað aðra Nokia Ovi Suite möguleika.
Þessi stilling verður sjálfkrafa virk þegar forritið Nokia Ovi Suite er opnað.
Gagnaflutningur — Tengdu símann þinn við samhæfa tölvu sem hefur ekki Nokia
Ovi Suite uppsett. Síminn þinn greinist sem USB flash-minni. Þú getur líka tengt
símann þinn við önnur tæki, t.d. hljómflutningstæki í bíl eða heimahúsi, sem þú getur
tengt við USB-drif.
Meðan tækið er tengt tölvu á þessari stillingu má vera að þú getir ekki notað sum forrit
símans.
Hitt tækið getur ekki fengið aðgang að gagnageymslunni í símanum þínum.
Efnisflutningur — Tengdu símann þinn við samhæfa tölvu sem hefur ekki Nokia
Ovi Suite uppsett. Tónlist sem vernduð er með ákvæðum um höfundarrétt þarf að
flytja í þessari stillingu. Einnig er hægt að nota sum heimakerfi og suma prentara í
þessari stillingu.
Nettengja tölvu — Tengdu símann þinn við samhæfa tölvu og notaðu hann sem
þráðlaust mótald. Tölvan tengist sjálfkrafa við internetið.