Tengdu USB-gagnageymslutæki
Hægt er að nota USB-í-leiðinni (OTG) millistykki til að tengja símann við samhæfan
USB-minniskubb eða harðan disk. Til dæmis er hægt að vista myndir á USB-
minniskubbi án þess að tengjast tölvu.
Minniskubbur tengdur
1 Tengdu micro-USB-endann á USB OTG millistykkinu (selt sér) við USB-tengið í
símanum.
2 Tengdu minniskubb við USB OTG millistykkið.
Skrár-forritið opnast og minniskubburinn birtist sem gagnageymsla.
110 Tengingar
Afritun skráar
Í Skrár heldurðu inni skránni sem þú vilt afrita, svo valkost úr sprettivalmyndinni og
loks möppuna sem á að afrita í.
Ef þú tengir harðan disk sem þarf meiri orku en síminn getur veitt birtast villuboð.
Tengja þarf ytri aflgjafa við harða diskinn.